Sérþjónusta
Til að hægt sé að nota tækið verða notendur að vera
áskrifendur þjónustu fyrir þráðlausa síma. Margir af
valkostum símans flokkast undir sérþjónustu. Ekki er
hægt að nota þessa valkosti í öllum símkerfum. Í öðrum
símkerfum kann jafnframt að vera farið fram á sérstaka
skráningu fyrir þessari þjónustu. Notkun netþjónustu
felur í sér sendingu gagna. Fáðu upplýsingar hjá
þjónustuveitu þinni um gjöld á heimaneti þínu og
þegar reiki er notað á öðrum netum. Leiðbeiningar
ásamt upplýsingum um gjald fyrir þjónustuna fást hjá
þjónustuveitu. Sum símkerfi kunna að hafa
12
Öry
ggi
takmarkanir sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota
sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla
séríslenska bókstafi og þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar
aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar í
tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins.
Tækið kann einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann
heitum, röð og táknum valmynda að hafa verið breytt.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og
SSL) sem keyra á TCP/IP samskiptareglum. Sumar
aðgerðir þessa tækis, svo sem MMS, netvafur og
tölvupóstur, krefjast símkerfisstuðnings við þessa
tækni.
13
Öry
ggi