Um tækið
Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er
samþykkt til notkunar í (E)GSM 850, 900, 1800, 1900,
og UMTS 900 og 2100 MHz símkerfi. Þjónustuveitan
gefur nánari upplýsingar um símkerfi.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða
staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi
annarra, þ.m.t. höfundarrétt.
11
Öry
ggi
Varnir vegna höfundarréttar geta hindrað afritun,
breytingu eða flutning sumra mynda, tónlistar og
annars efnis.
Tækið styður nokkrar mismunandi gerðir tenginga.
Líkt og gildir um tölvur hafa vírusar og annað skaðlegt
efni áhrif á tækið. Fara skal með gát við meðhöndlun
skilaboða, tengibeiðna, við vefskoðun og við niðurhal.
Aðeins skal setja upp og nota þjónustu og hugbúnað
frá áreiðanlegum aðilum sem bjóða upp á nægjanlega
vörn gegn skaðlegum hugbúnaði líkt og Symbian
Signed hugbúnað eða hugbúnað sem hefur staðist Java
Verified™ prófun. Þú ættir að íhuga að setja
vírusvarnarhugbúnað og annan öryggishugbúnað upp
í tækinu og tölvum sem tengjast við það.
Tækið getur innihaldið bókamerki og tengla fyrir
vefsíður þriðju aðila. Einnig er hægt að skoða vefsíður
þriðju aðila í tækinu. Vefsíður þriðju aðila tengjast ekki
Nokia og Nokia hvorki hvetur til né tekur ábyrgð á
þeim. Ef þú vilt heimsækja slíkar síður skaltu beita
öryggisráðstöfunum.
Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu
tæki, annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu.
Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra
tækja getur valdið truflun eða hættu.
Skrifstofuforritið styður helstu valkosti Microsoft Word,
PowerPoint og Excel (Microsoft Office 2000, XP og
2003). Ekki er hægt að skoða eða breyta öllum
skráargerðum.
Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar
mikilvægar upplýsingar sem geymdar eru í tækinu.
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa
notendahandbók þess vandlega, einkum upplýsingar
um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
Myndir í þessum bæklingi kunna að líta öðruvísi út en
á skjá tækisins.