![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia N96/is/Nokia N96_is176.png)
Úrræðaleit
Á www.nseries.com/support má sjá svör við
algengum spurningum frá notendum tækisins.
Spurning: Hvert er lykilorðið mitt fyrir
læsingar-, PIN, eða PUK-númerin?
Svar: Sjálfgefinn númerakóði læsingar er 12345.
Hafðu samband við söluaðilann ef þú gleymir
læsingarnúmerinu. Ef PIN- eða PUK-númer gleymist
eða ef ekki hefur verið tekið við slíku númeri skal
hafa samband við þjónustuveituna. Upplýsingar um
lykilorð fást hjá aðgangsstaðaþjónustu, t.d.
netþjónustuveitu eða símafyrirtæki.
Spurning: Hvernig loka ég forriti sem er
frosið, þ.e. svarar ekki?
Svar: Haltu inni
. Forriti er lokað með því að velja
það og ýta á C . Ekki er slökkt á tónlistarspilaranum
þegar ýtt er á C. Til að slökkva á tónlistaspilaranum
velurðu hann af listanum og svo
Valkostir
>
Hætta
.
Spurning: Af hverju virðast myndir vera
óskýrar?
Svar: Gakktu úr skugga um að hlífðargler
myndavélarlinsunnar séu hrein.
Spurning: Hvers vegna sjást daufir,
upplitaðir eða skærir punktar á skjánum í
hvert skipti sem ég kveiki á tækinu?
Svar: Þetta er einkennandi fyrir þessa gerð af skjám.
Á sumum skjám geta verið dílar eða punktar sem
lýsa annaðhvort stöðugt eða alls ekki. Hér er ekki
um að ræða galla heldur eðlilegan hlut.
Spurning: Af hverju getur tækið mitt ekki
komið á GPS-tengingu?
Svar: Nánari upplýsingar um GPS, GPS-móttakara,
merki gervitungla og staðsetningarupplýsingar er
að finna í þessari notendahandbók.
Sjá
„Staðsetning (GPS)“, bls. 91.
Spurning: Af hverju finn ég ekki tæki vinar
míns þegar ég nota Bluetooth?
Svar: Gakktu úr skugga um að tækin séu samhæf, að
kveikt sé á Bluetooth og tækin séu sýnileg. Gakktu
einnig úr skugga um að fjarlægðin á milli tækjanna
tveggja sé ekki meiri en 10 metrar (33 fet) og að ekki
séu veggir eða aðrar hindranir á milli þeirra.
176
Úrræðaleit
![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia N96/is/Nokia N96_is177.png)
Spurning: Af hverju get ég ekki slitið
Bluetooth-tengingu?
Svar: Ef annað tæki er tengt við tækið þitt getur þú
slitið tengingunni í hinu tækinu eða slökkt á
Bluetooth-tengingunni í tækinu þínu. Ýttu á
og
veldu
Verkfæri
>
Bluetooth
>
Bluetooth
>
Slökkt
.
Spurning: Af hverju birtast skrárnar sem ég
hef vistað í tækinu mínu ekki á
heimakerfinu?
Svar: Gakktu úr skugga um að þú hafir stillt
heimakerfið, að kveikt sé á samnýtingu efnis í
tækinu þínu og að hitt tækið sé UPnP-samhæft.
Spurning: Hvað á ég að gera ef tengingin við
heimakerfið mitt hættir að virka?
Svar: Slökktu á þráðlausu staðarnetstengingunni
(WLAN) í samhæfu tölvunni og tækinu og kveiktu
svo aftur á henni. Ef það nægir ekki skalt ræsa
tölvuna og tækið á ný. Ef ekki tekst enn að koma á
tengingu skaltu setja þráðlausu
staðarnetsstillingarnar aftur upp í tölvunni og
tækinu.
Sjá „Þráðlaust staðarnet“, bls. 113.Sjá
„Tengistillingar“, bls. 169.
Spurning: Hvers vegna sé ég samhæfu
tölvuna mína ekki í tækinu á heimakerfinu?
Svar: Ef þú ert með eldvegg í tölvunni skaltu gæta
þess að hann leyfi Home Media Server að nota ytri
tenginguna (hægt er að bæta Home Media Server á
undantekningalista eldveggsins). Gættu þess á
stillingum eldveggsins að forritið leyfi flutning til
eftirfarandi gátta: 1900, 49152, 49153 og 49154.
Sum aðgangsstaðartæki fyrir þráðlaust staðarnet
eru með innbyggðan eldvegg. Þá skal gæta þess að
eldveggurinn í tækinu hindri ekki flutning til
eftirfarandi gátta: 1900, 49152, 49153 og 49154.
Gakktu úr skugga um að stillingar þráðlausa
staðarnetsins séu eins í tækinu og samhæfu
tölvunni.
Spurning: Hvers vegna get ég ekki séð
aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet þó svo
ég viti að ég er innan móttökusvæðis hans?
Svar: Verið getur að aðgangsstaðurinn noti falinn
SSID-kóða. Þú getur aðeins fengið aðgang að
netkerfum sem nota falinn SSID-kóða ef þú veist
kóðann og hefur búið til internetaðgangsstað fyrir
þráðlausa staðarnetið í Nokia-tækinu þínu.
Spurning: Hvernig slekk ég á þráðlausu
staðarneti í Nokia tækinu mínu?
Svar: Tenging við þráðlausa staðarnetið rofnar
þegar þú ert ekki tengdur eða að reyna að tengjast
við annan aðgangsstað eða að leita að tiltæku
netkerfi. Til að draga enn frekar úr rafhlöðueyðslu
er hægt að stilla Nokia-tækið þannig að það leiti
ekki eða leiti sjaldnar að tiltækum netkerfum í
177
Úrræðaleit
![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia N96/is/Nokia N96_is178.png)
bakgrunni. Það slokknar á þráðlausa staðarnetinu
milli þess sem leit fer fram í bakgrunni.
Til að breyta stillingum bakgrunnsleitar:
1.
Ýttu á
og veldu
Verkfæri
>
Stillingar
>
Tenging
>
Þráðl. staðarnet
.
2.
Tímabil bakgrunnsleitarinnar er aukið með því
að stilla tímann í
Leitað að staðarnetum
.
Slökkt er á bakgrunnsleit með því að velja
Sýna
vísi staðarneta
>
Aldrei
.
3.
Breytingarnar eru vistaðar með því að ýta á
Til
baka
.
Þegar
Sýna vísi staðarneta
er stillt á
Aldrei
birtist táknið fyrir tiltæk þráðlaus staðarnet ekki
í biðstöðu. Þú getur hins vegar enn leitað
handvirkt að tiltækum þráðlausum netkerfum
og tengst þráðlausu neti eins og venjulega.
Spurning: Hvernig get ég vistað gögnin áður
en ég eyði þeim?
Svar: Til að vista gögn skal nota Nokia Ovi Suite eða
Nokia Nseries PC Suite til að samstilla við eða til að
búa til öryggisafrit af öllum gögnum og setja það á
samhæfa tölvu. Einnig er hægt að senda gögn með
Bluetooth-tengingu í samhæft tæki. Einnig er hægt
að vista gögn á samhæfu minniskorti.
Spurning: Hvað geri ég ef minnið er fullt?
Svar: Eyddu efni úr minni tækisins eða úr
gagnageymslunni. Ef tækið birtir minnispunktinn
Ekki nægilegt minni fyrir aðgerð. Eyða þarf
einhv. gögnum fyrst.
eða
Lítið minni eftir. Eyddu
einhverjum gögnum úr minni símans.
þegar þú
eyðir mörgum atriðum í einu skaltu eyða einu atriði
í einu og byrja á því minnsta.
Sjá „Laust
minni“, bls. 25.
Spurning: Af hverju get ég ekki valið tengilið
fyrir skilaboðin mín?
Svar: Tengiliðaspjaldið inniheldur hvorki
símanúmer, vistfang né tölvupóstfang. Ýttu á
,
veldu
Tengiliðir
og viðeigandi tengilið, og breyttu
tengiliðaspjaldinu.
Spurning: Hvernig get ég lokað
gagnatengingu sem tækið kemur alltaf á
aftur?
Svar: Tækið kann að vera að reyna að sækja
margmiðlunarboð frá skilaboðastöðinni. Til að
hindra tækið í að koma á gagnatengingu skaltu ýta
á
og velja
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarboð
>
Móttaka
margmiðlunar
og
Handvirkt val
ef
margmiðlunarboðastöðin á að vista skilaboð sem
verða sótt síðar, eða
Óvirk
til að hundsa öll
margmiðlunarboð sem berast. Ef þú velur
Handvirkt val
mun berast tilkynning þegar ný
skilaboð bíða þín margmiðlunarboðastöðinni. Ef þú
velur
Óvirk
kemur tækið aldrei á tengingu við
farsímakerfið vegna margmiðlunarboða. Til að
178
Úrræðaleit
![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia N96/is/Nokia N96_is179.png)
stilla tækið þannig að það noti aðeins
pakkagagnatengingu, ef þú ræsir forrit eða aðgerð
sem þarfnast hennar, skaltu ýta á
og velja
Verkfæri
>
Stillingar
>
Tenging
>
Pakkagögn
>
Pakkagagnatenging
>
Ef með
þarf
. Ef þetta hjálpar ekki skaltu slökkva á tækinu
og kveikja á því aftur.
Spurning: Af hverju á ég í vandræðum með
að tengja tækið við tölvuna mína?
Svar: Gakktu úr skugga um að þú sért með nýjustu
útgáfuna af Nokia Ovi Suite eða Nokia Nseries PC
Suite og að hún sé uppsett og virk á tölvunni þinni.
Til að sjá nánari upplýsingar um notkun Nokia Ovi
Suite eða Nokia Nseries PC Suite skaltu skoða
hjálparvalmyndina eða þjónustusíður Nokia.
Spurning: Get ég notað tækið sem faxmótald
með samhæfri tölvu?
Svar: Þú getur ekki notað tækið sem faxmótald. Með
því að nota símtalsflutning (sérþjónusta) getur þú
hins vegar beint mótteknum símbréfssendingum í
faxnúmer.
Spurning: Hvers vegna finnur tækið ekkert
dagskrárefni?
Svar: Veldu
Valkostir
>
Leita aftur
. Ef þetta hjálpar
ekki skaltu velja
Valkostir
>
Stillingar
til að skoða
Kerfisstaða
. If það ekki neitt merki eða það er veikt
skaltu breyta um staðsetningu. Lokaðu og opnaðu
aftur
Stillingar
til að sjá hvort merkið verður betra.
Spurning: Hvað geri ég ef standurinn losnar?
Svar: Ef að þú t.d. missir tækið gæti standurinn
dottið af en það er hægt að festa hann aftur á sinn
stað.
179
Úrræðaleit