Uppsetning forrita og
hugbúnaðar
Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr
samhæfðri tölvu, hlaða þeim niður þegar vafrað er
eða fá þær sendar sem margmiðlunarskilaboð, sem
tölvupóstsviðhengi eða nota aðrar tengiaðferðir,
svo sem Bluetooth. Hægt er að nota Nokia
Application Installer í Nokia Ovi Suite eða Nokia
Nseries PC Suite til að setja upp forrit í tækinu.
Táknin í Forritastjórnun sýna eftirfarandi:
.sis- eða .sisx-forrit
Java-forrit
forrit er ekki fyllilega uppsett
forrit sett upp í gagnageymslunni
forrit sett upp á minniskortinu
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota
forrit og annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d.
forrit með Symbian Signed eða forrit sem hafa verið
prófuð með Java Verified.
Fyrir uppsetningu geturðu gert eftirfarandi:
●
Til að skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og
seljanda eða framleiðanda forritsins skaltu velja
Valkostir
>
Skoða upplýsingar
.
Til að sjá upplýsingar um öryggisvottorð
forritsins skaltu velja Upplýsingar:, fletta að
Vottorð:, og velja
Skoða upplýsingar
.
Sjá
„Vottorðastjórnun“, bls. 165.
●
Ef sett er upp skrá með uppfærslu eða lagfæringu
á forriti er aðeins hægt að endurheimta
upphaflega forritið ef fyrir hendi er upphaflega
uppsetningarskráin eða fullkomið afrit af
hugbúnaðarpakkanum sem var fjarlægður. Til að
endurheimta upphaflega forritið skaltu fyrst
fjarlægja forritið og setja það svo upp aftur með
því að nota upphaflegu uppsetningarskrána eða
öryggisafritið.
Nauðsynlegt er að hafa .jar-skrá til að setja upp
Java-forrit. Ef skrána vantar getur tækið beðið þig
um að hlaða henni niður. Ef enginn
aðgangsstaður er tilgreindur fyrir forritið biður
tækið þig um að velja aðgangsstað. Þegar þú
hleður niður .jar-skránni geturðu þurft að slá inn
notandanafn og lykilorð til að fá aðgang að
miðlaranum. Þú getur fengið notandanafn og
lykilorð hjá söluaðila eða framleiðanda forritsins.
Til að setja upp forrit eða hugbúnað:
1.
Til að staðsetja uppsetningarskrá skaltu ýta á
og velja
Forrit
>
Stj. forrita
. Að öðrum kosti
skaltu leita að uppsetningarskrám með
Skráarstjóra eða opna skilaboð í
Skilaboð
>
Innhólf
sem inniheldur uppsetningarskrá.
2.
Í Forritastjórnun velurðu
Valkostir
>
Setja
upp
. Í öðrum forritum skaltu fletta að
155
Forritamappa
uppsetningarskránni og velja hana til að hefja
uppsetninguna.
Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið
upplýsingar um stöðu uppsetningarinnar. Ef þú
setur upp forrit án rafrænnar undirskriftar eða
vottorðs birtir tækið viðvörun. Þú skalt aðeins
halda áfram að setja upp forritið ef þú ert viss
um uppruna þess og innihald.
Til að ræsa uppsett forrit skaltu staðsetja það í
valmyndinni og velja það. Ef forritið er ekki með
sjálfgefna möppu skilgreinda er það sett upp í
möppunni Forrit á aðalvalmyndinni.
Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir
upp eða fjarlægðir og hvenær það var gert skaltu
velja
Valkostir
>
Skoða notk.skrá
.
Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt
vírusvarnarforrit í einu. Notkun fleiri en eins
vírusvarnarforrits getur haft áhrif á afkastagetu og
virkni tækisins, eða valdið því að það virki ekki.
Uppsetningarskrár (.sis, .sisx) eru áfram í minni
tækisins eftir að forrit þeirra hafa verið sett upp á
samhæfu minniskorti. Skrárnar geta tekið mikið
minni og valdið því að ekki sé hægt að vista aðrar
skrár. Til að losa um minni skaltu nota Nokia Ovi
Suite eða Nokia Nseries PC Suite til að taka
öryggisafrit af uppsetningarskrám og setja afritið á
samhæfa tölvu. Að því loknu skaltu nota
Skráarstjórann til að eyða uppsetningarskránum úr
minni tækisins. Ef .sis-skráin er viðhengi í tölvupósti
skaltu eyða skilaboðunum úr innhólfinu.