Stillingar fyrir heimakerfi
Til að samnýta skrár sem eru vistaðar í Myndum í
öðrum samhæfum UPnP-tækjum og tækjum með
DLNS-vottun um þráðlaust staðarnet þarf fyrst að
búa til og stilla internetaðgangsstað fyrir
staðarnetið og stilla svo heimanetið í Home media
forritinu.
Sjá „WLAN-
netaðgangsstaðir“, bls. 114.Sjá
„Tengistillingar“, bls. 169.
Valkostir í tengslum við heimanetið eru ekki tiltækir
í forritunum fyrr en stillingarnar í Home Media
forritinu hafa verið valdar.
Þegar þú opnar Home Media forritið í fyrsta skipti
opnast hjálparforrit sem sýnir þér hvernig velja á
heimanetsstillingarnar fyrir tækið. Hægt er að nota
þetta hjálparforrit seinna með því að velja
Valkostir
>
Keyra hjálp
á aðalvalmynd Home
media og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
Nauðsynlegt er að setja upp samhæfan hugbúnað á
tölvu sem tengja á við heimakerfið. Hugbúnaðinn
er að finna á geisladiskinum eða DVD-diskinum sem
fylgir með tækinu en einnig er hægt að hlaða
honum niður af þjónustusíðum á vefsíðu Nokia.
Stillingar
Heimanetið er stillt með því að velja
Verkfæri
>
Tenging
>
Heimakerfi
>
Valkostir
>
Stillingar
og úr eftirfarandi:
86
Heimanet
●
Heimaaðgangsstaður
— Veldu
Spyrja alltaf
ef
þú vilt að tækið spyrji um aðgangsstaðinn í hvert
skipti sem það er tengt við heimakerfið,
Búa til
nýjan
til að velja nýjan aðgangsstað sem er
sjálfkrafa notaður þegar heimakerfið er notað,
eða
Enginn
. Öryggisviðvörun birtist ef ekki er
kveikt á neinum öryggisstillingum í
heimakerfinu fyrir þráðlausa staðarnetið. Þú
getur haldið áfram og kveikt á örygginu síðar,
sem og hætt við að tilgreina aðgangsstaðinn og
byrjað á því að kveikja á öryggi kerfisins.
Sjá
„Aðgangsstaðir“, bls. 170.
●
Heiti tækisins
— Sláðu inn nafn fyrir tækið sem
birtist í samhæfum tækjum á heimkerfinu.
●
Afrita
— Veldu minnið þar sem vista á afritaðar
skrár.
Stillt á samnýtingu og efni
tilgreint
Veldu
Verkfæri
>
Tenging
>
Heimakerfi
>
Samnýta efni
og úr eftirfarandi:
●
Samnýting efnis
— Til að leyfa eða leyfa ekki
samnýtingu skráa á samhæfum tækjum. Ekki
velja samnýtingu efnis fyrr en allar aðrar
stillingar hafa verið valdar. Ef stillt er á
samnýtingu efnis geta önnur UPnP-tæki á
heimanetinu skoðað og afritað skrárnar sem þú
hefur valið að samnýta í
Myndir &
hreyfimyndir
og notað spilunarlista sem þú
hefur valið í
Tónlist
. Ef þú vilt ekki að önnur tæki
geti opnað skrárnar þínar skaltu slökkva á
samnýtingu efnis.
●
Myndir & hreyfimyndir
— Veldu skrár til
samnýtingar með öðrum tækjum eða skoðaðu
samnýtingarstöðu mynda og hreyfimynda. Til að
uppfæra efnið í möppunni skaltu velja
Valkostir
>
Uppfæra efni
.
●
Tónlist
— Veldu spilunarlista til samnýtingar
með öðrum tækjum eða skoðaðu
samnýtingarstöðu og efni spilunarlista. Til að
uppfæra efnið í möppunni skaltu velja
Valkostir
>
Uppfæra efni
.
Skrár skoðaðar og samnýttar
Til að samnýta skrár með öðrum UPnP-tækjum á
heimakerfinu skaltu kveikja á samnýtingu efnis.
Sjá