Um heimakerfi
Tækið styður UPnP (Universal Plug and Play) og er
vottað af DLNA (Digital Living Network Alliance)..
Hægt er að nota aðgangsstaðartæki eða beini fyrir
þráðlaust staðarnet til að búa til heimanet. Þá er
hægt að að tengja samhæf UPnP-tæki sem styðja
þráðlaust heimanet við netið. Samhæf tæki geta
verið farsími, samhæf tölva, hljóðkerfi eða sjónvarp,
eða samhæfur þráðlaus móttakari sem er tengur við
hljóðkerfi eða sjónvarp.
Hægt er að samnýta og samstilla skrár sem eru
vistaðar í farsímanum við önnur samhæf UPnP-tæki
og tæki með DLNS-vottun á heimaneti. Til að fá
heimanetið til að virka og stýra stillingum þess
velurðu
>
Verkfæri
>
Tenging
>
Heimakerfi
. Einnig er hægt að nota
heimanetsforritið til að skoða og spila skrár úr
heimanetstækjum í tækinu þínu eða í öðru
samhæfu tæki, svo sem tölvu, hljóðkerfi eða
sjónvarpi.
Til að skoða skrár í öðru heimanetstæki ferðu í
Myndir, velur skrá,
Valkostir
>
Sýna á
heimaneti
og tækið.
Til að hægt sé að nota þráðlausu
staðarnetstengingu í tækinu á heimaneti þarf hún
að vera virk og önnur UPnP-heimatæki þurfa að vera
tengd við sama heimanetið.
Þegar búið er að setja upp heimanet er hægt að
samnýta myndir, tónlist og myndskeið með vinum
og fjölskyldu heima. Einnig er hægt að geyma skrár
hjá efnismiðlara eða sækja skrár úr samhæfum
heimamiðlara. Hægt er að spila tónlist sem er vistuð
í tækinu í hljómflutningstækjum sem eru með
DLNA-vottun og stýra spilunarlistum og hljóðstyrk
beint úr tækinu. Einnig er hægt að skoða myndir
sem teknar hafa verið með myndavélinni í tækinu á
samhæfum sjónvarpsskjá, og stýrt öllu með tækinu
um þráðlaust heimanet.
Heimanetið notar öryggisstillingar þráðlausu
staðarnetstengingarinnar. Nota skal heimanetið á
þráðlausu staðarneti með tæki sem er með
aðgangsstað fyrir þráðlaust net og dulkóðun.
Tækið er aðeins tengt heimanetinu ef þú samþykkir
beiðni um tengingu frá öðru samhæfu tæki eða
velur þann kost að skoða, spila eða afrita skrár í
tækinu eða leita að öðrum tækjum.
85
Heimanet
Mikilvægar