Hugbúnaðaruppfærslur
Nokia kann að framleiða hugbúnaðaruppfærslur
með nýjum möguleikum, bættum aðgerðum eða
aukinni virkni. Þú getur hugsanlega nálgast þessar
uppfærslur með forritinu Nokia Software Updater
PC. Hugbúnaðaruppfærslur eru hugsanlega ekki í
boði fyrir allar vörur eða afbrigði þeirra. Ekki er víst
að öll símafyrirtæki hvetji til notkunar á nýjustu
útgáfum hugbúnaðarins.
Til að uppfæra hugbúnað tækisins þarftu að hafa
Nokia Software Updater forritið og samhæfa tölvu
með Microsoft Windows XP eða Vista stýrikerfi,
háhraðatengingu og samhæfa gagnasnúru til að
tengja tækið við tölvuna.
Viðvörun: Ekki er hægt að nota tækið,
jafnvel ekki til að hringja neyðarsímtöl, fyrr en
uppfærslunni er lokið og tækið hefur verið
22
Hj
álp
endurræst. Taka skal öryggisafrit af gögnum áður
en uppfærsla er samþykkt.
Hægt er að fá nánari upplýsingar og hlaða niður
forritinu Nokia Software Updater á
www.nokia.com/softwareupdate eða á vefsvæði
Nokia í heimalandi þínu.
Ef símkerfið styður hugbúnaðaruppfærslur með
ljósvakaboðum kannt þú einnig að geta beðið um
uppfærslur úr tækinu.
Ábending: Til að skoða hvaða
hugbúnaðarútgáfa er í tækinu slærðu inn
*#0000# í biðstöðu.