Nokia N96 - Raddstýrð hringing

background image

Raddstýrð hringing

Tækið þitt styður raddskipanir. Raddskipanir velta

ekki á rödd notandans þannig að ekki þarf að taka

upp raddmerki áður en hann notar þær. Tækið býr

til raddmerki fyrir færslur í tengiliðum og ber það

raddmerki sem notandinn segir saman við þær.

Raddkennslin í tækinu laga sig að rödd

aðalnotandans til að líklegra sé að tækið beri kennsl

á raddskipunina.
Raddmerki fyrir tengilið er nafnið eða gælunafnið

sem er vistað á tengiliðarspjaldinu. Til að hlusta á

tilbúið raddmerki skaltu opna tengiliðaspjald og

velja

Valkostir

>

Spila raddmerki

.

Hringt með raddmerki

Til athugunar: Notkun raddmerkja getur

verið erfið í hávaðasömu umhverfi eða í

neyðartilvikum, því ætti ekki að treysta eingöngu á

raddstýrt val við allar aðstæður.
Þegar þú notar raddstýrða hringingu er hátalarinn

í notkun. Haltu tækinu nálægt þér þegar þú berð

fram raddmerkið.

1.

Haltu inni hægri valtakkanum í biðstöðu til að

hefja raddstýrða hringingu. Ef samhæft höfuðtól

með höfuðtólstakka er notað skaltu halda

honum inni til að hefja raddstýrða hringingu.

2.

Stutt hljóðmerki heyrist og textinn

Tala nú

birtist. Berðu skýrt fram nafnið eða gælunafnið

sem er vistað á tengiliðarspjaldinu.

3.

Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir tengiliðinn á

því tungumáli sem er valið og birtir nafnið og

símanúmerið. Ef þú vilt ekki hringja í þann

tengilið skaltu velja

Næsta

innan 2,5 sekúndna

til að skoða aðrar niðurstöður í lista eða

Hætta

til að hætta við raddstýrða hringingu.

Ef nokkur númer eru vistuð undir nafninu velur

tækið sjálfgefna númerið, hafi það verið tilgreint. Ef

ekki, þá velur tækið fyrsta tiltæka númerið á

tengiliðarspjaldi.