Skilyrði
UMTS-tenging er nauðsyleg fyrir samnýtingu. Það
hvort þú getir notað samnýtingu hreyfimynda
veltur á UMTS-símkerfinu. Upplýsingar um
farsímakerfið, þjónustuna og gjald fyrir hana fást
hjá þjónustuveitunni.
Til að geta notað samnýtingu hreyfimynda þarftu
að gera eftirfarandi:
143
Hr
ingt úr tækinu
●
Gakktu úr skugga um að tækið þitt sé sett upp
fyrir tengingar á milli einstaklinga.
●
Gakktu úr skugga um að þú hafir virka UMTS-
tengingu og sért innan þjónustusvæðis UMTS-
símkerfis. Ef þú byrjar samnýtinguna meðan þú
ert innan þjónustusvæðis UMTS-símkerfis og
skipt er yfir í GSM-farsímakerfi, lýkur
samnýtingunni en símtalið heldur áfram. Ekki er
hægt að hefja samnýtingu hreyfimynda nema
vera innan þjónustusvæðis UMTS-símkerfis.
●
Gakktu úr skugga um að bæði sendandinn og
viðtakandinn séu skráðir á UMTS-símkerfið. Ef þú
býður einhverjum í samnýtingu og tæki
viðkomandi er ekki innan þjónustusvæðis UMTS-
símkerfis, hann hefur ekki sett upp samnýtingu
hreyfimynda eða tengingar á milli einstaklinga
veit viðkomandi ekki að þú sért að senda honum
boð. Þú færð villuboð um að viðtakandinn geti
ekki samþykkt boðið.