Stillingar
Til að hægt sé að samnýta hreyfimyndir þarf
stillingar fyrir tengingu á milli einstaklinga og
UMTS-tengingu.
Stillingar fyrir tengingar á milli einstaklinga
Tenging á milli einstaklinga er einnig þekkt undir
heitinu SIP-tenging (Session Initiation Protocol).
SIP-sniðstillingar þurfa að hafa verið valdar í tækinu
áður en þú getur notað samnýtingu hreyfimynda.
SIP-stillingarnar fást hjá þjónustuveitunni.
Nauðsynlegt er að vista þær í tækinu.
Þjónustuveitan gæti sent þér stillingarnar í
ljósvakaboðum eða gefið þér upp nauðsynlegar
stillingar.
SIP-vistfangi er bætt við tengiliðaspjald á
eftirfarandi hátt:
1.
Ýttu á
og veldu
Tengiliðir
.
2.
Opnaðu tengiliðarspjaldið (eða búðu til nýtt
spjald fyrir viðkomandi).
3.
Veldu
Valkostir
>
Bæta við upplýsingum
>
Samnýta hreyfimynd
.
4.
Sláðu inn SIP-vistfangið á forminu
notandanafn@vistfang (hægt er að nota IP-tölu
í stað vistfangs).
Ef þú veist ekki hvert SIP-vistfang viðkomandi er
geturðu notað símanúmerið hans, ásamt
landsnúmerinu, til að samnýta hreyfimynd (ef
netþjónustuveitan styður það).
UMTS-tengistillingar
Settu upp UMTS-tenginguna þína á eftirfarandi hátt:
●
Hafðu samband við þjónustuveituna þína til að
gerast áskrifandi að UMTS-þjónustunni.
●
Gakktu úr skugga um að UMTS-
aðgangsstaðastillingarnar í tækinu hafi verið
rétt valdar.
144
Hr
ingt úr tækinu