
Niðurhal korta
Þegar kort er skoðað á skjánum í Korta-forritinu er
nýju korti hlaðið sjálfkrafa niður ef farið er inn á
svæði sem ekki er á kortunum sem búið er að hlaða
niður. Hægt er að sjá magn fluttra gagna á
gagnateljaranum (kB) sem er á skjánum. Teljarinn
sýnir hve netnotkunin er mikil þegar kort eru
skoðuð, leiðaráætlanir gerðar eða leitað er að
stöðum á netinu. Niðurhal á kortum getur falið í sér
stórar gagnasendingar um farsímakerfi
þjónustuveitunnar. Upplýsingar um
gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Til að hindra að tækið hlaði kortum sjálfvirkt niður
af internetinu, t.d. þegar þú ert utan
heimasímkerfisins, eða öðrum kortagögnum sem
sérþjónusta biður um, skaltu velja
Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Internet
>
Nettenging
við ræsingu
>
Nei
.
Til að tilgreina hve mikið pláss af minniskorti eða
gagnageymslu skal nota til að vista kort eða skrár
með raddleiðsögn skaltu velja
Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Kort
>
Nota
hámarksminni
. Valkosturinn um minniskort er
aðeins tiltækur þegar samhæft minniskort er í
tækinu. Þegar minnið er orðið fullt er elstu
kortunum eytt. Hægt er að eyða kortum með Nokia
Map Loader PC forritinu.
98
Ko
rt

Nokia Map Loader
Nokia Map Loader er tölvuforrit sem hægt er að nota
til að hlaða niður kortum af internetinu í tækið eða
á samhæft minniskort. Einnig er hægt að nota það
til að hlaða niður raddskrám sem veita nákvæma
leiðsögn.
Setja verður Nokia Map Loader upp á tölvu áður en
hægt er að nota það. Hægt er að hlaða
tölvuhugbúnaðinum niður af internetinu á
www.nokia.com/maps. Fylgdu fyrirmælunum á
skjánum.
Nota þarf forritið Kort og skoða kort a.m.k. einu
sinni áður en Nokia Map Loader forritið er tekið í
notkun. Nokia Map Loader notar upplýsingar úr
Korta-forritinu til að kanna hvaða útgáfu
kortaupplýsinga á að hlaða niður.
Eftir að hugbúnaðurinn hefur verið settur upp á
tölvu er kortum hlaðið niður á eftirfarandi hátt:
1.
Tengdu tækið við tölvuna með samhæfri USB-
gagnasnúru. Veldu
Gagnaflutningur
sem USB-
tengiaðferð.
2.
Opnaðu Nokia Map Loader í tölvunni. Nokia Map
Loader kannar hvaða útgáfu af kortagögnum á
að hlaða niður.
3.
Veldu kort eða raddleiðsagnarskrár sem þú vilt
hlaða niður og settu þær upp í tækinu þegar
þeim hefur verið hlaðið niður.
Ábending: Notaðu Nokia Map Loader til að
vista gjöld fyrir gagnaflutning.