
Um Kort
Ýttu á
og veldu
Kort
.
Með forritinu Kort geturðu séð hvar á kortinu þú ert
staddur, skoðað kort yfir ýmsar borgir og lönd,
leitað að heimilisföngum og ýmsum áhugaverðum
stöðum, gert leiðaráætlanir milli staða, séð
umferðarupplýsingar og vistað staði sem
uppáhaldsstaði og sent þá í samhæf tæki.
Einnig geturðu keypt viðbótarþjónustu, svo sem
borgarleiðsögn og nákvæma aksturs- &
gönguleiðsögn með raddstýringu og
umferðarupplýsingaþjónustu.
Kort nota GPS.
Sjá „Staðsetning (GPS)“, bls. 91.
Hægt
er að velja staðsetningaraðferðir fyrir tækið með
stillingum þess.
Sjá „Staðsetningar-
stillingar“, bls. 167.
Til að fá sem nákvæmastar
upplýsingar um staðsetningu skaltu nota
annaðhvort innbyggða GPS-móttakarann eða
samhæfan ytri GPS-móttakara.
Þegar þú notar Korta-forritið í fyrsta skipti þarftu
e.t.v. að tilgreina internetaðgangsstað til að geta
hlaðið niður kortaupplýsingum um þann stað sem
þú ert staddur á. Hægt er að breyta sjálfgefnum
aðgangsstað síðar með því að velja
Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Internet
>
Símkerfi
í
Korta-forritinu (sést aðeins ef þú ert nettengdur).
Þegar kort er skoðað í Korta-forritinu er
kortaupplýsingum hlaðið sjálfvirkt niður í tækið af
netinu. Nýju korti er aðeins hlaðið niður ef farið er
inn á svæði sem ekki er á kortunum sem búið er að
hlaða niður. Sum kort kunna að hafa verið í
gagnageymslu tækisins þegar þú fékkst það.
Hægt er að hlaða niður fleiri kortum í tækið með
Nokia Map Loader forritinu.
Sjá „Niðurhal
korta“, bls. 98.
Ábending: Einnig er hægt að hlaða niður
kortum um þráðlausa staðarnetstengingu.
Niðurhal á kortum getur falið í sér stórar
gagnasendingar um farsímakerfi
þjónustuveitunnar. Upplýsingar um
gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Ef þú vilt að Korta-forritið komi nettengingu á
sjálfkrafa þegar það er ræst skaltu velja
Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Internet
>
Nettenging
við ræsingu
>
Já
í forritinu.
Hægt er að fá tilkynningu senda þegar tækið finnur
símkerfi utan heimasímkerfisins með því að velja
96
Ko
rt

Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Internet
>
Viðvörun um reiki
>
Kveikt
(sést aðeins þegar þú
ert nettengdur). Þjónustuveitan þín gefur nánari
upplýsingar (m.a. um reikigjöld).
Nánast öll stafræn kort eru ónákvæm og
ófullnægjandi að einhverju leyti. Aldrei skal treysta
eingöngu á kort sem hlaðið hefur verið niður til
notkunar með þessu tæki.