![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia N96/is/Nokia N96_is067.png)
Myndataka
Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú tekur mynd:
●
Notaðu báðar hendur til að halda myndavélinni
kyrri.
●
Myndgæðin minnka þegar aðdráttur er notaður.
●
Kveikt er á orkusparnaði myndavélarinnar ef ekki
hefur verið ýtt á neinn takka í tiltekinn tíma. Ýttu
á myndatökutakkann til að halda áfram að taka
myndir.
Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú tekur mynd:
1.
Ef myndavélin er stillt á myndupptöku velurðu
myndatöku á tækjastikunni.
2.
Ýttu myndatökutakkanum niður til hálfs til að
festa fókusinn á myndefnið (aðeins í
aðalmyndavél, ekki í boði í landslags- og
íþróttastillingu).
Sjá „Tækjastika“, bls. 66.
). Á
skjánum birtist grænn fókusvísir. Hafi fókusinn
ekki verið festur birtist rauður fókusvísir.
Slepptu myndatökutakkanum og ýttu honum
aftur niður til hálfs. Einnig er hægt að taka mynd
án þess að fókusinn hafi verið festur.
3.
Ýttu á
myndatökutakkann til
að taka mynd. Hreyfðu
ekki tækið fyrr en
myndin hefur verið
vistuð og og birtist á
skjánum.
Við myndatöku skaltu
nota aðdráttartakka
tækisins til að auka eða
minnka aðdrátt.
Kveikt er á fremri myndavélinni með því að velja
Valkostir
>
Nota myndavél 2
. Ýttu á
skruntakkann til að taka mynd. Aðdráttur er aukinn
eða minnkaður með því að fletta upp eða niður.
67
Myndavél
![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia N96/is/Nokia N96_is068.png)
Ef þú vilt hafa kveikt á myndavélinni í bakgrunni og
nota önnur forrit ýtirðu á
. Ýttu á
myndatökutakkann til að geta notað myndavélina.