Stillingar fyrir kyrrmyndir
Til að breyta aðalstillingunum skaltu velja
Valkostir
>
Stillingar
í myndastöðu, og svo úr
eftirfarandi:
●
Myndgæði
— Stilla myndupplausn (aðeins fyrir
aðalmyndavélina). Því meiri sem gæðin eru,
þeim mun meira minni tekur myndin.
●
Setja inn í albúm
— Vista mynd í albúmi í
Myndum.
●
Skrá staðsetningu
— Til að setja GPS-
staðsetningarhnit í hverja myndaskrá skaltu
velja
Kveikt
. Það getur tekið tíma að ná GPS-
merki og ekki er víst að merki náist.
Sjá
„Upplýsingar um staðsetningu“, bls. 68.
●
Sýna teknar myndir
— Velja hvort skoða skuli
myndir um leið og þær hafa verið teknar eða
halda strax áfram að taka myndir.
●
Sjálfgefið heiti myndar
— Veldu sjálfgefið heiti
fyrir teknar myndir.
●
Aukin stafræn stækkun
— Aðeins er boðið upp
á þessa stillingu í aðalmyndavélinni.
Kveikt
(samfellt)
leyfir að stighækkandi aðdráttur sé
samfelldur milli stafrænnar og aukinnar
stafrænnar stækkunar,
Kveikt (með töf)
leyfir
að stighækkandi aðdráttur stöðvist þegar komið
er að stafrænni og aukinni stafrænni stækkun, og
Slökkt
leyfir takmarkaða notkun á aðdrætti en
heldur myndupplausninni. Aðeins skal nota
aukinn aðdrátt þegar mikilvægara er að nálgast
myndefnið en að gæði myndarinnar séu fyrsta
flokks. Almenn gæði myndar sem tekin er með
aðdrætti eru minni en myndar sem ekki er tekin
með aðdrætti.
73
Myndavél
●
Myndatökuhljóð
— Veldu tón sem á að heyrast
þegar mynd er tekin.
●
Minni í notkun
— Veldu hvar myndir skulu
vistaðar.
●
Snúa mynd
— Veldu hvort myndum sem teknar
voru upp á rönd er snúið þegar þær eru opnaðar
í Galleríinu.
●
Upprunarlegar stillingar
— Stilltu á
upphaflegar stillingar myndavélarinnar.