
Um myndavélina
Það eru tvær myndavélar í Nokia N96.
Aðalmyndavélin, sem er með hárri upplausn (allt að
5 milljónum díla), er aftan á tækinu.
Aukamyndavélin, sem er með minni upplausn, er
framan á því. Hægt er að nota báðar myndavélarnar
til að taka myndir og taka upp hreyfimyndir.
Þetta tæki styður 2592x1944 punkta
myndupplausn. Myndupplausnin í þessari handbók
getur virst önnur.
Myndir og myndskeið vistast sjálfkrafa í Myndum.
Sjá „Myndir“, bls. 76.
Myndavélin tekur myndir á
JPEG-sniði. Myndskeið eru tekin upp á MPEG-4-sniði
með endingunni .mp4, eða á 3GPP-sniði með
endingunni .3gp (samnýtingargæði).
Sjá „Stillingar
myndskeiða“, bls. 74.
Til að losa minni fyrir nýjar myndir og myndskeið
flyturðu t.d. skrár í tölvu með USB-gagnasnúru og
fjarlægir þær úr tækinu. Tækið lætur þig vita þegar
minnið er orðið fullt. Þá er hægt að losa minni í
gagnageymslunni eða skipta um minni.
Hægt er að senda myndir og myndskeið í
margmiðlunarskilaboðum, sem viðhengi í
tölvupósti eða með öðrum sendiaðferðum, t.d. um
Bluetooth eða með tengingu við þráðlaust
staðarnet. Einnig er hægt að hlaða þeim upp í
samhæft netalbúm.
Sjá „ Samnýting mynda og
myndskeiða á netinu “, bls. 82.