
Upptaka myndskeiða
1.
Ef myndavélin er stillt á myndatöku velurðu
myndupptöku á tækjastikunni.
2.
Ýttu á myndatökutakkann til að hefja
upptökuna. Rauða upptökutáknið ( ) birtist og
það heyrist tónn.
3.
Hægt er að gera hlé á upptökunni hvenær sem
er með því að ýta á
Hlé
. Veldu
Áfram
til að halda
áfram. Ef þú gerir hlé á upptöku og ýtir ekki á
neinn takka innan einnar mínútu stöðvast
upptakan.
Notaðu aðdráttartakka tækisins til að auka eða
minnka aðdrátt.
4.
Ýttu á myndatökutakkann til að stöðva upptöku.
Myndskeiðið vistast sjálfkrafa í Myndum.
Hámarkslengd hreyfimyndar er um 30 sekúndur
með samnýtingargæðum og 90 mínútur með
öðrum gæðastillingum.
Kveikt er á fremri myndavélinni með því að velja
Valkostir
>
Nota myndavél 2
. Myndupptaka er
ræst með því að ýta á skruntakkann. Aðdráttur er
aukinn eða minnkaður með því að fletta upp eða
niður.