Öryggi tenginga
Ef öryggisvísirinn birtist á meðan tenging er virk
er gagnasendingin á milli tækisins og
netgáttarinnar eða miðlarans dulkóðuð.
Öryggistáknið sýnir ekki að gagnasendingin milli
gáttarinnar og efnisþjónsins (eða staðarins þar sem
umbeðin tilföng eru geymd) sé örugg.
Þjónustuveitan tryggir gagnasendinguna milli
gáttarinnar og efnisþjónsins.
Öryggisvottorð geta verið nauðsynleg fyrir tiltekna
þjónustu, líkt og bankaþjónustu. Látið er vita ef
uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða ef tækið
inniheldur ekki er rétt öryggisvottorð.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.