![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia N96/is/Nokia N96_is109.png)
Niðurhal og kaup á hlutum
Hægt er að hlaða niður hlutum eins og hringitónum,
myndum, skjátáknum símafyrirtækis, þemum og
myndskeiðum. Sumir þessara hluta eru ókeypis en
aðrir eru til sölu. Hlutir sem hlaðið er niður eru
meðhöndlaðir af viðeigandi forritum tækisins. T.d.
er hægt að vista ljósmynd, sem hlaðið hefur verið
niður, í Myndum.
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota
forrit og annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d.
forrit með Symbian Signed eða forrit sem hafa verið
prófuð með Java Verified.
Hlut hlaðið niður:
1.
Veldu tengilinn.
2.
Veldu viðeigandi valkost til að kaupa hlutinn
(t.d. Buy).
3.
Lestu vandlega allar upplýsingar.
4.
Til að halda áfram eða hætta við niðurhal skaltu
velja viðeigandi valkost (t.d. Accept eða
Cancel).
Þegar byrjað er að hlaða niður efni birtist listi yfir
það sem er í gangi hverju sinni og það sem búið er
að hlaða niður.
Til að breyta listanum skaltu velja
Valkostir
>
Niðurhal
. Þú finnur hluti á listanum og velur
Valkostir
til að hætta við að hlaða niður, eða til að
opna, vista eða eyða efni sem búið er að hlaða niður.