Netvafri
Til að sjá lista yfir vefsíður sem skoðaðar hafa verið
í þessari törn skaltu velja
Til baka
(tiltækt ef
Listi
yfir fyrri síður
er virkt í vafrastillingunum og
núverandi síða er ekki sú fyrsta sem hefur verið
heimsótt). Veldu þá vefsíðu sem þú vilt.
Til að vista vefsíðu á meðan þú vafrar skaltu velja
Valkostir
>
Verkfæri
>
Vista síðu
.
Hægt er að vista vefsíður og skoða þær síðar án
tengingar. Einnig má flokka vefsíðurnar í möppur.
Til að opna vefsíðurnar sem þú hefur vistað skaltu
velja
Vistaðar síður
á aðalskjá netvafrans.
Til að opna undirlista skipana eða aðgerða vegna
þeirrar vefsíðu sem er opin skaltu velja
Valkostir
>
Þjónustuvalkostir
(ef vefsíðan styður það).
Til að leyfa eða hindra sjálfvirka opnun margra
glugga skaltu velja
Valkostir
>
Gluggi
>
Loka
fyrir sprettiglugga
eða
Leyfa sprettiglugga
.
Flýtivísar þegar vafrað er
●
Ýttu á 1 til að opna bókamerkin þín.
●
Ýttu á 2 til að leita að lykilorðum á síðunni.
●
Ýttu á 3 til að opna fyrri síðuna sem var skoðuð.
●
Ýttu á 5 til að sjá hvaða gluggar eru opnir.
●
Ýttu á 8 til að sjá yfirlit síðu sem er opin. Ýttu aftur
á 8 til að auka aðdrátt og skoða tiltekinn hluta
síðunnar.
●
Ýttu á 9 til að slá inn nýtt veffang.
●
Ýttu á 0 til að opna heimasíðuna (hafi hún verið
valin).
●
Ýttu á * og # til að auka eða minnka aðdrátt á
síðunni.
Ábending: Til að fara aftur í biðstöðu en hafa
vafrann opinn í bakgrunninum skaltu ýta
tvisvar sinnum á
eða á hætta takkann. Til
að fara til baka í vafrann heldurðu
inni og
velur vafrann.