Nokia N96 - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og

hleðslutæki

Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu.

Þetta tæki er ætlað til notkunar með BL-5F rafhlöðu.

Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með

eftirfarandi hleðslutækjum: AC-5. Hægt er að hlaða

og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að

því kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal- og

biðtími er orðinn mun styttri en eðlilegt er skal

skipta um rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem

samþykktar eru af Nokia og aðeins skal endurhlaða

rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia hefur

samþykkt til notkunar með þessu tæki. Notkun

ósamþykktra rafhlaða eða hleðslutækja getur

valdið eldhættu, sprengingu, leka eða haft aðra

áhættu í för með sér.
Númer hleðslutækisins getur verið mismunandi

eftir klónni sem er notuð. Gerð klónnar er auðkennt

af einu af eftirfarandi: E, EB, X, AR, U, A, C eða UB.
Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef

rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan tíma, kann

að vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið,

aftengja það síðan og tengja það aftur til að hefja

hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið

nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á

skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja

hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.
Taka skal hleðslutækið úr sambandi við

rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í

notkun. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í

sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur

stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar

hleðslunni smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.
Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á

bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F). Of mikill

hiti eða kuldi draga úr endingu og líftíma rafhlöðu.

Tæki með heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta

að starfa tímabundið. Einkum hefur mikið frost

takmarkandi áhrif á rafhlöður.
Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í

rafhlöðunni. Skammhlaup getur orðið fyrir slysni

þegar málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma eða

penni veldur beinni tengingu milli + og - skautanna

á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á

rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta gerst þegar

vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup

181

Rafh

la

ða

background image

milli skautanna getur valdið skemmdum á

rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.
Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta

sprungið. Rafhlöður geta einnig sprungið ef þær

skemmast. Farga skal rafhlöðum í samræmi við

staðbundin lög og reglugerðir. Skila skal þeim í

endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja

þeim með heimilisúrgangi.
Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja,

afmynda, gata eða tæta rafhlöður. Ef rafhlaða lekur

má vökvi hennar ekki komast í snertingu við húð

eða augu. Ef slíkt kemur fyrir skal skola húð eða

augu umsvifalaust með vatni, eða leita til læknis.
Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að setja hluti í

rafhlöðuna sem ekki eiga að vera þar, dýfa

rafhlöðunni í vatn eða aðra vökva, eða bleyta hana.
Röng notkun rafhlöðunnar hefur í för með sér eld-

eða sprenghættu, eða aðra hættu. Ef þú missir

tækið eða rafhlöðuna, og þá sérstaklega á hart

yfirborð, og telur að rafhlaðan hafi skemmst, skaltu

fara með hana til þjónustuvers til skoðunar áður en

þú heldur áfram að nota hana.
Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er

ætluð. Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða

rafhlöðu. Geyma skal rafhlöðuna þar sem lítil börn

ná ekki til.

Leiðbeiningar um