![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia N96/is/Nokia N96_is043.png)
Nokia Kvikmyndabanki
Með Kvikmyndabankanum (sérþjónusta) er hægt að
hlaða niður og straumspila myndskeið frá
samhæfum kvikmyndaveitum á netinu með því að
nota pakkagagnatengingu eða þráðlausa
staðarnetstengingu. Einnig er hægt að flytja
myndskeið úr samhæfri tölvu í tækið og skoða þau
í Kvikmyndabankanum
Það getur falið í sér stórar gagnasendingar um
farsímakerfi þjónustuveitunnar að nota
aðgangsstaði fyrir pakkagögn til að hlaða niður
hreyfimyndum. Upplýsingar um
gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Tækið kann að vera með fyrirfram skilgreinda
þjónustu.
Þjónustuveitur geta ýmist boðið upp á ókeypis efni
sem og efni sem gjald er tekið fyrir. Kannaðu verðið
hjá þjónustunni eða þjónustuveitunni.