Myndskeið flutt úr tölvu
Færðu eigin myndskeið yfir í Video centre frá
samhæfum tækjum með samhæfri USB-snúru.
Video centre mun einungis birta myndskeið sem eru
á sniði sem tækið styður.
1.
Til að sjá tækið í tölvu sem gagnageymslu, sem
hægt er að flytja allar gagnaskrár í, skaltu koma
á tengingu með USB-gagnasnúru.
2.
Veldu
Gagnaflutningur
sem gerð tengingar.
3.
Veldu myndskeiðin sem þú vilt afrita af tölvunni.
4.
Færðu myndskeiðin yfir í E:\My Videos í
gagnageymslu tækisins eða í F:\My Videos á
samhæfa minniskortið, ef það er tiltækt.
Myndskeiðin sem búið er að færa birtast í
Hreyfimyndirnar mínar
möppunni í Video
centre. Myndefnisskrár í öðrum möppum
tækisins sjást ekki.