Sjónvarpsúttak
Til að geta skoðað myndskeið og myndir í samhæfu
sjónvarpi skaltu nota Nokia Video tengisnúru.
Velja þarf TV-út stillingar fyrir sjónvarpskerfið og
skjáhlutfall áður en myndir og myndskeið eru
skoðuð í sjónvarpinu.
Sjá „Stillingar
aukahluta“, bls. 163.
Ekki er hægt að nota sjónvarpið sem myndglugga
myndavélarinnar í TV-út stillingu.
Gera þarf eftirfarandi til að geta skoðað myndir og
myndskeið í sjónvarpi:
1.
Tengja Nokia Video tengisnúru við
myndbandsinnstunguna í samhæfu sjónvarpi.
2.
Tengja hinn enda Nokia Video tengisnúrunnar
við Nokia AV innstunguna á tækinu þínu.
3.
Þú gætir þurft að velja snúrustillinguna.
4.
Ýttu á
, veldu
Gallerí
og leitaðu að skránni
sem þú vilt skoða.
Myndirnar eru
sýndar á
myndskjánum
og
myndskeiðin
eru spiluð í
Kvikmyndabankanum.
Allt hljóð, þar á meðal símtöl, víðóma hljóð
myndskeiða og takka- og hringitónar, er sent í
sjónvarpið þegar Nokia tengisnúran er tengd við
tækið. Hægt er að nota hljóðnema tækisins.
Öll forrit nema möppurnar í
Myndir
sýna á
sjónvarpsskjánum það sem birtist á skjá tækisins.
Myndin birtist í fullri skjástærð í sjónvarpinu. Ef
mynd er opnuð á smámyndaskjánum á meðan hún
er skoðuð í sjónvarpinu er ekki hægt að súmma
hana.
Þegar þú opnar auðkennt myndskeið fer
Kvikmyndabankinn að spila það á skjá tækisins og í
sjónvarpinu.
Sjá „RealPlayer “, bls. 103.
Hægt er að skoða myndir sem skyggnusýningu í
sjónvarpinu. Allt innihald albúms eða merktar
myndir birtast í fullri skjástærð í sjónvarpinu við
undirleik tónlistar sem valin hefur verið.
Sjá
„Skyggnusýning“, bls. 79.
Gæði sjónvarpsmyndar geta verið misjöfn ef
upplausnin í tækjunum er mismunandi.
Þráðlaus útvarpsmerki, svo sem innhringingar, geta
valdið truflunum á sjónvarpsmyndinni.
51
Sjó
nva
rp
og hreyfim
yndir