
Mail for Exchange
Með Mail for Exchange geturðu fengið vinnupóstinn
þinn sendan á Nokia N96. Þú getur lesið og svarað
tölvupósti, skoðað og breytt viðhengjum, skoðað
upplýsingar í dagbók, tekið við og svarað
fundarboðum, skipulagt fundi og skoðað, bætt við
og breytt tengiliðaupplýsingum. Mail for Exchange
er einungis hægt að setja upp ef fyrirtæki þitt er
með Microsoft Exchange Server. Auk þess verður
kerfisstjóri fyrirtækisins að virkja Mail for Exchange
fyrir reikninginn þinn.
Áður en hafist er handa við uppsetningu á Mail for
Exchange skaltu tryggja að þú sért með eftirfarandi:
131
Sk
ilaboð

●
Auðkenni fyrir fyrirtækistölvupóst
●
Notandanafn þitt á fyrirtækisnetinu
●
Lykilorð þitt á fyrirtækisnetinu
●
Lénsheiti netsins (hafðu samband við tölvudeild
fyrirtækisins)
●
Miðlaraheiti þitt fyrir Mail for Exchange (hafðu
samband við tölvudeild fyrirtækisins)
Þú þarft hugsanlega að færa inn aðrar upplýsingar
til viðbótar þeim sem áður er lýst, allt eftir
uppsetningu Mail for Exchange-miðlara
fyrirtækisins. Ef þú veist ekki réttar upplýsingar
skaltu hafa samband við tölvudeild fyrirtækisins.
Hugsanlega er nauðsynlegt að nota læsingarkóða
með Mail for Exchange. Sjálfgefinn læsingarkóði
fyrir Nokia N96 er 12345, en hugsanlega hefur
kerfisstjóri fyrirtækisins breytt honum fyrir þig.
Uppsetning Mail for Exchange sýnir þér hugsanlega
ólíka upplýsingaglugga í uppsetningarferlinu, allt
eftir uppsetningunni í fyrirtækinu. Lestu
sprettigluggana og veldu
Áfram
,
Í lagi
,
Næsta
eða
Já
til að halda áfram.
Til að setja upp Mail for Exchange:
1.
Á heimaskjánum skaltu fletta að
póstuppsetningunni og ýta á skruntakkann.
2.
Veldu
Ræsa póstuppsetningu
.
3.
Lestu upplýsingarnar á skjánum og veldu
Byrja
.
4.
Veldu
Já
til að leyfa tækinu að tengjast
internetinu.
5.
Sláðu inn netfangið þitt og veldu
Í lagi
.
6.
Sláðu inn lykilorðið þitt og veldu
Í lagi
.
7.
Sláðu inn notandanafnið þitt og veldu
Í lagi
.
8.
Veldu Mail for Exchange.
9.
Færðu inn lénsheiti fyrir netkerfið og veldu
Í
lagi
.
10.
Sláðu inn heiti miðlara Mail for Exchange og
veldu
Í lagi
.
11.
Veldu
Já
til að setja upp Mail for Exchange-
forritið í tækinu.
Að uppsetningu lokinni geturðu sett upp
notandasnið þitt í Mail for Exchange með því að
breyta stillingunum. Fyrirtækið getur einnig látið
útbúa notandasniðið sjálfkrafa.