
Um GPS
GPS (Global Positioning System) er þráðlaust
leiðsögukerfi sem nær yfir allan hnöttinn og
samanstendur af 24 gervitunglum og jarðstöðvum
sem vakta þau. Í tækinu er innbyggður GPS-
móttakari.
GPS-móttakari tekur á móti radíómerkjum af litlum
styrk frá gervihnöttunum og mælir ferðatíma
merkjanna. Út frá ferðatímanum getur GPS-
móttakarinn reiknað út staðsetningu sína upp á
metra.
Hnitin í GPS-tækinu eru gefin upp í gráðum og broti
úr gráðum og alþjóðlega WGS-84 hnitakerfið er
notað.
GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af
Bandaríkjastjórn sem ber alla ábyrgð á nákvæmni
þess og viðhaldi. Nákvæmni staðsetningargagna
kann að verða fyrir áhrifum af breytingum á GPS-
gervihnöttum sem gerðar eru af Bandaríkjastjórn
og kann að breytast í samræmi við stefnu
varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um
borgaralegt GPS og alríkisáætlun um þráðlausa
leiðsögu. Slæm rúmfræði gervihnatta getur einnig
haft áhrif á nákvæmni. Staðsetning, byggingar,
náttúrulegar hindranir auk veðurskilyrða kunna að
hafa áhrif á móttöku og gæði GPS-merkja. Aðeins
ætti að nota GPS-móttakarann utanhúss til að taka
á móti GPS-merkjum.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar
staðsetningarmælingar og aldrei ætti að treysta
eingöngu á staðsetningargögn frá GPS-
móttakaranum og símkerfi fyrir staðsetningu eða
leiðsögn.
Til að kveikja eða slökkva á mismunandi
staðsetningaraðferðum, líkt og Bluetooth GPS,
ýtirðu á
og velur
Verkfæri
>
Stillingar
>
Almennar
>
Staðsetning
>
Staðsetningaraðferðir
.