
Sérstillingar
Ýttu á
og veldu
Verkfæri
>
Stillingar
>
Almennar
>
Sérstillingar
.
Hægt er að breyta stillingum sem tengjast skjánum,
biðstöðu og almennri virkni tækisins.
Þemu
býður upp á breytingar á útliti skjásins.
Sjá
„Útliti tækisins breytt“, bls. 39.
Raddskipanir
opnar stillingar fyrir
raddskipanaforritið.
Sjá „Raddskipanir “, bls. 159.
Tónar
gerir þér kleift að breyta tónum fyrir dagbók,
klukku og sniðið sem er í notkun.
Skjár
●
Skjábirta
— Flettu til vinstri eða hægri til að
stilla birtuna á skjánum.
●
Sjálfvirkur snúningur
— Breyttu stillingunni
fyrir sjálfvirkan snúning skjás. Í flestum forritum
skiptist skjárinn sjálfvirkt á milli landslags- og
andlitsmynda eftir því hvernig tækið snýr. Til að
tryggja að sjálfvirki snúningurinn virki skaltu
halda tækinu þannig að það snúi beint upp.
Sjálfvirkur snúningur virkar ekki ef snúningi skjás
er breytt handvirkt inni í forriti. Þegar farið er út
úr forritinu eða það er sett í bakgrunn verður
sjálfvirkur snúningur aftur virkur.
●
Leturstærð
— Stilltu stærð texta og tákna á
skjánum.
●
Sparnaður hefst eftir
— Veldu hversu langur
tími líður þar til kviknar á orkusparnaðinum.
●
Opnun.kv. eða táknm.
— Opnunarkveðjan eða
táknið birtist í stutta stund í hvert sinn sem kveikt
er á tækinu. Veldu
Sjálfvalin
til að velja
sjálfgefnu myndina,
Texti
til að skrifa
opnunarkveðju eða
Mynd
til að velja mynd úr
myndaforritinu.
●
Tímamörk ljósa
— Veldu tímann sem þú vilt að
líði þar til slökkt er á baklýsingu skjásins.
162
Stillin
ga
r

Biðstaða
●
Flýtivísar
— Úthlutaðu flýtivísum fyrir
valtakkana sem nota skal í biðstöðu og veldu
hvaða forrit eiga að sjást á tækjastikunni.
Ef slökkt er á virka biðskjánum er hægt að úthluta
flýtivísum fyrir mismunandi staði á
skruntakkanum.
●
Þema biðskjás
— Veldu
Lárétt táknstika
til að
sjá lárétta tækjastiku og efni úr ýmsum forritum
á skjánum eða
Lóðrétt táknstika
til að sjá
lóðrétta tækjastiku. Efnið úr ýmsum forritum er
falið. Til að sjá efnið skaltu velja flýtivísi og ýta
vinstra megin á skruntakkann. Veldu
Engin
táknstika
til að slökkva á tækjastikunni.
●
Stöðuljós
— Brúnin í kringum skruntakkann
lýsist hægt upp þegar tækið er í svefnstillingu en
hratt ef símtölum hefur ekki verið svarað eða
skilaboð hafa borist. Til að slökkva á ljósinu
velurðu
Slökkt
.
●
Skjátákn símafyrirtækis
— Þessi stilling er
aðeins tiltæk ef þú hefur fengið og vistað
skjátákn símafyrirtækis. Veldu
Óvirkt
ef þú vilt
ekki að skjátáknið birtist.
Tungumál
Það að breyta stillingum fyrir tungumál valmynda
eða textainnsláttar hefur áhrif á öll forrit tækisins
þangað til stillingunum er breytt aftur.
●
Tungumál síma
— Breyttu um tungumál í
valmyndum símans. Þetta hefur einnig áhrif á
sniðið sem er notað fyrir daga og tíma, sem og
skiltákn, t.d. í útreikningum.
Sjálfvirkt
velur
tungumálið út frá upplýsingunum á SIM-kortinu.
Tækið endurræsist þegar nýtt tungumál er valið
fyrir skjátexta.
●
Tungumál texta
— Breytir tungumáli fyrir
innsleginn texta. Þetta hefur áhrif á þá stafi sem
eru í boði þegar texti er sleginn inn og á orðabók
flýtiritunar.
●
Flýtiritun
— Kveikir eða slekkur á flýtiritun fyrir
alla ritla tækisins. Ekki er hægt að velja flýtiritun
fyrir öll tungumál.