Nokia N96 - Símtalsstillingar

background image

Símtalsstillingar

Ýttu á

og veldu

Verkfæri

>

Stillingar

>

Sími

>

Símtöl

.

Senda mitt númer

— Þú getur valið að leyfa

þeim sem þú hringir í að sjá símanúmerið þitt

(

) og falið það fyrir þeim (

Nei

). Einnig kann

símafyrirtækið þitt eða þjónustuveita að velja

aðra hvora stillinguna fyrir þig þegar þú gerist

áskrifandi (

Stillt af símkerfi

) (sérþjónusta).

Símtal í bið

— Til að hringitónn fylgi

innhringingu (sérþjónusta) á meðan þú ert að

tala í símann skaltu velja

Virkja

. Til að kanna

hvort aðgerðin sé virk skaltu velja

Athuga

stöðu

.

Hafna símtali með skilab.

— Veldu

til að

senda textaskilaboð til þess sem hringir í þig til

að láta hann vita af hverju þú getur ekki svarað

símtalinu.

Texti skilaboða

— Skrifaðu textann sem á að

senda í skilaboðum þegar þú hafnar símtali.

Mynd í myndsímtali

— Ef tækið hefur verið stillt

á að senda ekki hreyfimynd í myndsímtölum er

hægt að velja kyrrmynd sem birtist þess í stað.

167

Stillin

ga

r

background image

Sjálfvirkt endurval

— Veldu

Virkt

og þá gerir

tækið allt að tíu tilraunir til að ná sambandi ef

það tókst ekki í fyrstu tilraun. Ýttu á hætta-

takkann til að slökkva á sjálfvirka endurvalinu.

Sýna lengd símtala

— Veldu þessa stillingu ef

þú vilt að lengd símtals birtist meðan það fer

fram.

Samantekt símtals

— Veldu þessa stillingu ef

þú vilt að lengd símtals birtist að því loknu.

Hraðval

— Veldu

Virkt

og þá er hægt að hringja

í númerin sem eru tengd við talnatakkana (2 til

9) með því einu að halda tökkunum inni.

Sjá

„Hringt á fljótlegan hátt í símanúmer

(hraðval)“, bls. 140.

Takkasvar

— Veldu

Virkt

og þá er hægt að svara

innhringingu með því að styðja á hvaða takka

sem er, nema rofann, valtakkana, aðdráttar-/

hljóðstyrkstakkann eða myndatökutakkann.

Lína í notkun

— Þessi stilling (sérþjónusta) sést

aðeins ef SIM-kortið styður tvær símalínur, þ.e.

tvö númer í áskrift. Veldu hvaða símalínu á að

nota til að hringja og senda textaskilaboð. Það er

hægt að svara símtölum á báðum línum, burtséð

frá því hvor línan hefur verið valin. Ef þú velur

Lína 2

en hefur ekki gerst áskrifandi að þessari

sérþjónustu geturðu ekki hringt úr tækinu. Þegar

lína 2 er valin birtist þegar tækið er í biðstöðu.

Línuskipting

— Til að hindra að skipt sé á milli

lína (sérþjónusta) skaltu velja

Gera óvirka

ef

SIM-kortið styður það. Til að breyta þessari

stillingu þarftu að hafa PIN2-númerið.