
Aðgangsstaðahópar búnir til
Ýttu á
og veldu
Verkfæri
>
Stillingar
>
Tenging
>
Nettengileiðir
.
Í sumum forritum er hægt að nota
aðgangsstaðahópa til að nettengjast.
Til að þurfa ekki að velja hvaða aðgangsstað á að
nota í hvert sinn sem tækið reynir að nettengjast er
hægt að búa til hóp sem inniheldur ýmsa
aðgangsstaði og tilgreina í hvaða röð á að nota
aðgangsstaðina til að nettengjast.
Til dæmis er hægt að bæta aðgangsstöðum fyrir
þráðlaust staðarnet og pakkagögn við
aðgangsstaðahópinn og nota hópinn til að vafra á
netinu. Ef aðgangsstaður fyrir þráðlaust staðarnet
er látinn hafa forgang tengist tækið netinu um
þráðlaust staðarnet, ef það er tiltækt, en um
pakkagagnatengingu að öðrum kosti.
Nýr aðgangsstaðahópur er búinn til með því að velja
Valkostir
>
Sýsla
>
Nýtt takmark
.
Til að bæta aðgangsstað við aðgangsstaðahóp
velurðu hópinn og
Valkostir
>
Nýr
aðgangsstaður
. Til að afrita aðgangsstað úr
öðrum hópi velurðu hópinn, flettir að
aðgangsstaðnum og velur
Valkostir
>
Skipuleggja
>
Afrita á annan stað
.
Til að breyta forgangsröð aðgangsstaða innan hóps
velurðu aðgangsstað og síðan
Valkostir
>
Skipuleggja
>
Breyta forgangi
.