Höfuðtól
Hægt er að tengja samhæft höfuðtól eða samhæf
heyrnartól við tækið. Þú gætir þurft að velja
snúrustillinguna.
Viðvörun: Þegar
höfuðtólið er notað getur það
skert heyrn á
umhverfishljóðum. Ekki skal
nota höfuðtólið þar sem
hætta getur stafað af.
Sum höfuðtól hafa tvo hluta;
fjarstýringu og höfuðtól
(heyrnartól). Fjarstýring er
með hljóðnema og takka til
að svara og slíta símtölum,
stilla hljóðstyrk og spila
tónlistarskrár eða
myndskeið. Höfuðtólið er notað með fjarstýringu
36
Tæ
ki
ð
með því að tengja fjarstýringuna við Nokia AV tengi
(3,5 mm) í tækinu og tengja svo höfuðtólin við
fjarstýringu.
Þegar hringt er handfrjálst skal nota höfuðtól með
samhæfri fjarstýringu eða nota hljóðnema tækisins.
Til að stilla hljóðstyrkinn meðan símtal fer fram skal
nota hljóðstyrkstakkann á tækinu eða á
höfuðtólinu. Sum höfuðtól eru með
margmiðlunarhljóðstillingu sem aðeins er hægt að
nota til að stilla hljóðstyrk við spilun tónlistar eða
hreyfimynda.
Einnig er hægt að tengja samhæfa sjónvarpssnúru
við Nokia hljóð- og myndtengið (3,5 mm) á tækinu.
Sjá „Sjónvarpsúttak“, bls. 51.
Ekki skal tengja vörur sem senda frá sér merki þar
sem slíkt getur skemmt símann. Ekki skal stinga
spennugjafa í samband við Nokia AV-tengið.
Þegar ytri tengi eða höfuðtól önnur en þau sem
Nokia samþykkir til notkunar með þessu tæki eru
tengd við Nokia hljóð- og myndtengið skal gæta
sérstaklega að hljóðstyrknum.