Um N-Gage
N-Gage er farleikjatölva sem er í boði fyrir ýmis
samhæf Nokia-fartæki. Hægt er að nálgast N-Gage
leiki, spilara og efni um N-Gage forritið í tækinu
þínu. Einnig er hægt að hlaða niður leikjum og fá
31
Tæ
ki
ð
aðgang að ýmsum aðgerðum á tölvunni á slóðinni
www.n-gage.com.
Með N-Gage geturðu keypt og hlaðið niður leikjum,
og spilað þá við sjálfan þig eða við vini. Þú getur
hlaðið niður sýnishornum til að prófa nýja leiki, og
keypt svo þá sem þú vilt. N-Gage gefur þér líka kost
á að vera í sambandi við aðra spilara, og að deila
stigafjölda þínum og árangri með öðrum.
Til að nota N-Gage þarftu GPRS- eða 3G-tengingu. Þú
getur einnig notað WLAN ef það er til staðar. Þú
þarft einnig tengingu til að fá aðgang að ýmsum
eiginleikum, svo sem niðurhali á leikum,
leikjaleyfum, fjölspilunarleikjum eða spjalli. Þú
þarft einnig tengingu til að taka þátt í net- eða
fjölspilunarleikjum eða til að senda skilaboð til
annarra spilara.
Öll N-Gage þjónusta, þar sem þörf er fyrir N-Gage
miðlara, svo sem niðurhal á leikjaskrám, kaup á
leikjum, leikir á netinu, leikir með mörgum
spilurum, gerð spilaranafns, spjall og skilaboð, fela
í sér í sér stórar gagnasendingar.
Þjónustuveitan innheimtir gjald fyrir
gagnaflutning. Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar um gagnaflutningsgjöld.