
Flutningur efnis
Hægt er að nota forritið Símaflutningur til að afrita
gögn eins og símanúmer, heimilisföng,
dagbókarfærslur og myndir úr gamla Nokia-tækinu
yfir í Nokia N96.
Það fer eftir gerð tækisins hvaða efni er hægt að
flytja úr því. Ef tækið styður samstillingu er einnig
hægt að samstilla gögn milli tækja. Nokia N96 lætur
þig vita ef hitt tækið er ekki samhæft.
Ef ekki er hægt að kveikja á hinu tækinu nema SIM-
kort sé í því geturðu sett SIM-kortið þitt í það. Þegar
kveikt er á Nokia N96 án SIM-korts er ótengda sniðið
sjálfkrafa valið og flutningur getur farið fram.
Efni flutt í fyrsta skipti
1.
Til að ná í gögn af hinu tækinu í fyrsta skipti
skaltu velja
Símaflutningur
í opnunarforritinu í
Nokia N96, eða velja
Verkfæri
>
Hjálparforrit
>
Símaflutn.
.
2.
Veldu tengigerðina sem þú vilt nota til að flytja
gögn. Bæði tækin verða að styðja
tengiaðferðina.
3.
Ef þú hefur valið Bluetooth sem tengiaðferð
skaltu tengja tækin saman. Veldu
Áfram
til að
láta tækið leita að tækjum með Bluetooth-
tengingu. Veldu tækið sem þú vilt flytja efni úr.
Tækið biður þig að slá inn kóða í Nokia N96 Sláðu
inn kóða (1-16 tölustafi að lengd) og veldu
Í
lagi
. Sláðu inn sama kóða í hitt tækið og veldu
Í lagi
. Þá eru tækin pöruð.
Ekki er víst að sumar eldri útgáfur Nokia-tækja
séu með Símaflutningsforritið. Þá er forritið sent
í hitt tækið í skilaboðum. Símaflutningsforritið
er sett upp í hinu tækinu með því að opna
skilaboðin og fylgja leiðbeiningunum á
skjánum.
4.
Í Nokia N96 tækinu velurðu efnið sem þú vilt
flytja úr hinu tækinu.
Hægt er að hætta við flutning og ljúka honum
síðar.
Efni er flutt úr minni hins tækisins á samsvarandi
stað í Nokia N96. Flutningstíminn veltur á því
gagnamagni sem er afritað.