![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia N96/is/Nokia N96_is026.png)
Staðsetning loftneta
Í tækinu kunna að vera innri og ytri loftnet. Líkt og
gildir um öll önnur tæki sem senda eða taka við
útvarpsbylgjum ætti að forðast að snerta loftnetið
að óþörfu við móttöku eða sendingu útvarpsbylgna.
Snerting við slíkt loftnet hefur áhrif á sendigæði og
getur valdið því að tækið noti meiri orku en annars
er nauðsynlegt og getur minnkað líftíma rafhlöðu
þess.
1
— Farsímaloftnet
2
— Loftnet fyrir Bluetooth tækni, þráðlaust
staðarnet og DVB-H: GPS móttakari
Athugið að loftnetin fyrir Bluetooth, þráðlaust
staðarnet, GPS og DVB-H eru á bakhlið tækisins. Ef
skipt er um lok á bakhliðinni skal gæta þess að þessi
loftnet séu á nýja lokinu, annars hætta þessar
tengingar að virka.