Stillingar hljóðstyrks og
hátalara
Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með
hæfilegum hljóðstyrk. Stöðug áraun af háum
hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Ekki skal halda
tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn er notaður
því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.
Þegar símtal er í gangi eða verið er að hlusta á
eitthvað er hljóðstyrkurinn stilltur með því að ýta á
hljóðstyrkstakkann.
Innbyggði hátalarinn gerir
þér kleift að tala í tækið og
hlusta á það sem
viðmælandinn segir úr lítilli fjarlægð án þess að
þurfa að halda á tækinu við eyrað.
Þegar verið er að tala í símann er kveikt á
hátalaranum með því að ýta á
Hátalari
.
Ýttu á
Símtól
til að slökkva á hátalaranum.