![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia N96/is/Nokia N96_is121.png)
Vekjaraklukka
Ýttu á
og veldu
Forrit
>
Klukka
.
Hringingar í eitt skipti eru stilltar með því að velja
Valkostir
>
Stilla vekjara einu sinni
. Hringingar
í eitt skipti eru stilltar fyrir næsta sólarhring og þær
er ekki hægt að endurtaka.
Til að skoða virkar og óvirkar stillingar skaltu fletta
til hægri að hringiflipanum. Stillt er á nýja hringingu
með því að velja
Valkostir
>
Stilla vekjara
. Veldu
endurtekningu ef þörf er. vísirinn sést á skjánum
þegar vekjaraklukkan hefur verið stillt.
Veldu
Stöðva
til að slökkva á hringingu. Hægt er að
stöðva hringinguna í tiltekinn tíma með því að velja
Blunda
. Ef slökkt er á tækinu þegar
viðvörunartíminn rennur upp kveikir það á sér og
hringir.
Ábending: Til að stilla eftir hve langan tíma
vekjaraklukkutónninn heyrist aftur þegar
stillt er á blund skaltu velja
Valkostir
>
Stillingar
>
Tími blunds
.
Slökkt er á vekjaraklukkunni (áður en hún hringir)
með því að velja
Valkostir
>
Slökkva á vekjara
.
Til að breyta tímanum, dagsetningunni og gerð
klukku velurðu
Valkostir
>
Stillingar
.
Veldu
Sjálfvirk tímauppfærsla
>
Kveikt
til að láta
farsímakerfið uppfæra tímann, dagsetninguna og
tímabelti tækisins (sérþjónusta).