Nokia netútvarp
Með netútvarpsforriti Nokia (sérþjónusta) er hægt
að hlusta á tiltækar útvarpsstöðvar á netinu. Til að
hægt sé að hlusta á útvarpsstöðvar þarf tækið að
vera með aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet eða
pakkagögn. Það getur falið í sér stórar
gagnasendingar um farsímakerfi
þjónustuveitunnar að hlusta á útvarpsstöðvar. Mælt
er með þráðlausri staðarnetstengingu. Fáðu
upplýsingar um skilmála og gjöld annarra tenginga
hjá þjónustuveitu áður en þú notar þær. Fast
mánaðargjald gerir þér t.d. kleift að flytja mikið
magn gagna fyrir fasta upphæð.