Um þráðlaus staðarnet
Til að geta notað þráðlaust staðarnet verður slíkt
net að vera til staðar og tækið að vera tengt
þráðlausa staðarnetinu. Sum þráðlaus staðarnet
eru varin og það þarf að fá aðgangsorð hjá
þjónustuveitunni til að geta tengst þeim.
Í sumum löndum, t.d. Frakklandi, eru takmarkanir á
notkun þráðlausra staðarneta. Frekari upplýsingar
má fá hjá yfirvöldum á staðnum.
Aðgerðir sem nota þráðlaust staðarnet eða leyfa
slíkum aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan aðrar
aðgerðir eru notaðar krefjast aukinnar
rafhlöðuorku og minnka endingartíma
rafhlöðunnar.
Tækið þitt styður eftirtaldar í þráðlausu staðarneti:
●
IEEE 802.11b/g staðalinn
●
2,4 GHz virkni
●
WEP-dulkóðunarstaðalinn (Wired equivalent
privacy) með allt að 128 bita lyklum, WPA-
staðalinn (Wi-Fi protected access) og 802.1x
dulkóðunaraðferðir, og WPS-staðalinn (Wi-Fi
protected setup). Aðeins er hægt að nota þessa
valkosti ef símkerfið styður þá.