Nokia N96 - Um Bluetooth-tengingar

background image

Um Bluetooth-tengingar

Hægt er að koma á þráðlausri tengingu við önnur

samhæf tæki, svo sem farsíma, tölvur, höfuðtól og

bílbúnað, með Bluetooth.
Hægt er að nota tenginguna til að senda myndir,

myndskeið, tónlist, hljóðskrár og minnismiða,

senda skrár frá samhæfri tölvu og til að prenta

myndir með samhæfum prentara.
Þar sem tæki með Bluetooth-tækni nota

útvarpsbylgjur til samskipta þurfa þau ekki að vera

í beinni sjónlínu hvert við annað. Þau þurfa þó að

vera í innan við 10 metra (33 feta) fjarlægð hvort frá

öðru. Truflanir geta orðið á tengingunni vegna

hindrana líkt og veggja eða annarra raftækja.

Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification

2.0 sem styður eftirfarandi snið: Generic Audio/

Video Distribution Profile, Advanced Audio

Distribution Profile, Audio/Video Remote Control

Profile, Basic Imaging Profile, Basic Printing Profile,

Dial-up Networking Profile, File Transfer Profile,

Hands-Free Profile, Headset Profile, Human

Interface Device Profile, Object Push Profile, SIM

Access Profile, Synchronization Profile, Serial Port

Profile og Phonebook Access Profile. Til að tryggja

samvirkni milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-

tækni skal nota aukahluti sem eru viðurkenndir af

Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá

framleiðendum annarra tækja um samhæfi þeirra

við þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á

rafhlöðu símans og draga úr endingu hennar.
Ekki er hægt að nota Bluetooth þegar tækið er læst.