![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia N96/is/Nokia N96_is184.png)
Umhirða og viðhald
Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni
sem fara þarf gætilega með. Eftirfarandi
leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.
●
Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers
kyns vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra
rafrásirnar. Ef tækið blotnar skal fjarlægja
rafhlöðuna og leyfa því að þorna alveg áður en
rafhlaðan er sett í það aftur.
●
Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum
stöðum né geyma það þar. Færanlegu hlutirnir
og rafrænir hlutar þess geta skemmst.
●
Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt
hitastig getur dregið úr endingu rafeindatækja,
skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum
plastefni.
●
Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar
tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur raki
myndast innan í því og hann getur skemmt
rafrásaspjöld.
●
Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en
tilgreint er í þessari handbók.
●
Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða
hrista það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri
rafrásarspjöld og fíngerðan búnað.
Harðir diskar eru viðkvæmir og verður að
meðhöndla með gát. Öll högg, titringur, dynkir,
önnur gáleysisleg meðferð tækisins eða mikill
hiti, raki og vökvar, geta valdið því að harði
diskurinn hætti að virka og gögn glatist eða
skemmist.
●
Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til
hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að
þrífa tækið.
●
Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest
hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg fyrir að
þeir vinni rétt.
●
Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að
hreinsa linsur, líkt og myndavélar- og
fjarlægðarlinsur.
●
Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með
símanum eða samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt
loftnet, breytingar á þeim eða viðbætur, gætu
skemmt tækið og kunna að brjóta í bága við
ákvæði laga um senditæki.
●
Nota skal hleðslutæki innandyra.
●
Alltaf skal taka öryggisafrit af gögnum sem
ætlunin er að halda, t.d. tengiliðum og
dagbókaratriðum.
184
Umhirða og viðhald
![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia N96/is/Nokia N96_is185.png)
●
Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja
þannig hámarksafköst með því að slökkva á
tækinu og fjarlægja rafhlöðu þess.
Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið,
rafhlöðuna, hleðslutækið eða aðra aukahluti. Ef
tæki vinnur ekki rétt skal fara með það til næsta
viðurkennda þjónustuaðila til lagfæringar.