Gagnageymslan forsniðin
Þegar gagnageymslan er forsniðin er öllum
gögnum eytt úr henni varanlega. Taka skal
öryggisafrit af gögnum sem á að geyma áður en
gagnageymslan er forsniðin. Hægt er að nota Nokia
158
Verkfæramappa
Ovi Suite eða Nokia Nseries PC Suite til að afrita gögn
yfir á samhæfa tölvu. Stafræn réttindi (DRM) geta
komið í veg fyrir að sum afrituð gögn verði sett upp
aftur. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um
þau stafrænu réttindi sem gilda um efnið.
Til að forsníða gagnageymsluna velurðu
Valkostir
>
Forsníða gagnageymslu
. Ekki skal
forsníða gagnageymsluna með tölvuhugbúnaði,
það getur dregið úr afköstum hennar.
Ekki er tryggt að öllum trúnaðarupplýsingum sem
vistaðar eru í gagnageymslu tækisins sé varanlega
eytt þó að hún sé forsniðin. Við venjulegt forsnið er
forsniðið rými aðeins merkt sem tiltækt pláss og
vistfangi til að finna skrárnar á ný er eytt. Það kann
að vera hægt að endurheimta forsniðin eða jafnvel
yfirskrifuð gögn með til þess gerðum tækjum og
hugbúnaði.