Nokia N96 - Neyðarsímtöl

background image

Neyðarsímtöl

Mikilvægt: Þetta tæki notar útvarpsmerki,

þráðlaus staðarnet, kapalkerfi og

notendaforritaðar aðgerðir. Ef tækið styður símtöl

á internetinu (netsímtöl) skaltu bæði kveikja á

farsímanum og á netsímtölum. Tækið reynir bæði

að koma á neyðarsímtölum á farsímakerfinu og um

þjónustuveitu netsímtala ef bæði eru valin. Ekki er

hægt að tryggja tengingu við allar aðstæður. Því

skyldi aldrei treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef

um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í

bráðatilvikum.
Neyðarsímtal:

188

Viðbótaröryggisupplýsingar

background image

1.

Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga

skal hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi.

Þú gætir einnig þurft að ljúka eftirfarandi, allt

eftir tækinu þínu:

Settu SIM-kort í tækið ef það er ætlað til

notkunar með slíku korti

Eyddu öllum takmörkunum sem þú hefur

valið í tækinu þínu.

Breyttu sniðinu þínu úr sniði án tengingar eða

flugsniði í virkt snið.

2.

Ýttu eins oft á endatakkann og þarf til að hreinsa

skjáinn og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.

3.

Veldu opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi

svæði. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.

4.

Ýttu á hringitakkann.

Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar

upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er.

Þráðlausa tækið getur verið eina samskiptatækið á

slysstað. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi

til þess.