
Vinnuumhverfi
Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk
útvarpsbylgna (RF) við notkun annaðhvort í
hefðbundinni stöðu við eyrað eða þegar það er haft
að minnsta kosti 1,5 sentimetri (5/8 tommur) frá
líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er
notað þegar tækið er borið á réttan hátt á
líkamanum ætti slíkur búnaður ekki að innihalda
málm og halda ætti tækinu að minnsta kosti í þeirri
fjarlægð frá líkamanum sem nefnd var hér á undan.
Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð
þarf þetta tæki góða tengingu við símkerfið. Í
sumum tilvikum getur sending gagna eða boða
tafist þar til slík tenging er tiltæk. Tryggja skal að
ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt þar til
sendingu er lokið.
Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu
dregist að tækinu. Ekki má geyma kreditkort eða
aðra segulmagnaða hluti með geymsluminni
nálægt tækinu því upplýsingar sem þar eru
geymdar gætu þurrkast út.